12.03.13 - 15:00
Magnús Már Einarsson
Tommy Nielsen í Fjarðabyggð (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Tommy Nielsen, fyrrum varnarmaður FH, hefur gengið til liðs við Fjarðabyggð.
Tommy fékk leikheimild með Fjarðabyggð í dag og getur því leikið sinn fyrsta leik með liðinu gegn Magna í Lengjubikarnum á sunnudag.
Fjarðabyggð féll úr annarri deildinni síðastliðið haust og mun því leika í þriðju deild í sumar.

Tommy lék níu tímabil með FH og varð fimm sinnum Íslandsmeistari með liðinu áður en hann lagði skóna á hilluna haustið 2011.
Þessi reyndi Dani verður 41 árs á þessu ári en hann skoraði þrettán mörk í 181 deildar og bikarleik með FH á ferli sínum í Hafnarfirði.