12.03.14 - 16:08
Magnús Már Einarsson
Farid fer í KR (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Farid Zato mun ganga í raðir KR og leika með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem KR og Þór sendu frá sér nú fyrir stundu.
Þórsarar greindu frá því í lok febrúar að þeir hefðu náð samkomulagi við Farid. KR-ingar sögðust einnig hafa samið við Farid en félögin hafa nú náð samkomulagi um að leikmaðurinn muni leika með Íslandsmeisturunum í sumar.

Yfirlýsing Þórs og KR:
Fjölmiðlar hafa undanfarna daga flutt fréttir af væntum félagaskiptum Abdel Farid Zato Arouna frá Tógó, annaðhvort í Þór Akureyri eða í KR. Bæði lið áttu í viðræðum við leikmanninn og hans uppeldisfélag í Togo.
Félögin hafa átt í viðræðum undanfarna daga um lausn málsins og er niðurstaða þeirra að leikmaðurinn semji við KR og verði leikmaður þess á komandi sumri. Viðræðurnar fóru fram í fullri vinsemd félaganna.
Reykjavík, 12. mars 2014,
Kristinn Kjærnested,
Formaður knattspyrnudeildar KR
Aðalsteinn Pálsson
formaður Knattspyrnudeildar Þórs Akureyri