12.03.14 - 15:16
Magnús Már Einarsson
Haraldur Björnsson til Strömmen á láni (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Strømmen í norsku B-deildinni hefur fengið markvörðinn Harald Björnsson á láni frá Sarpsborg.
Lánssamningurinn gildir út tímabilið en Sarpsborg á kost á að kalla Harald fyrr til baka.

Haraldur kom til Sarpsborg frá Val árið 2012 og hjálpaði liðinu upp í norsku úrvalsdeildina.
Á síðasta tímabili settu meiðsli strik í reikninginn hjá Haraldi fyrri hluta tímabils en síðari hlutann var hann síðan á láni hjá Fredrikstad.
Haraldur mun áfram æfa með Sarpsborg að hluta því á mánudögum og þriðjudögum mun hann æfa með Sarpsborg á morgnanna og Strømmen á kvöldin.
Haraldur er 24 ára gamall en hann hefur verið viðloðandi íslenska landsliðshópinn.