Fotbolti.net
12.03.14 - 14:00
Magnús Már Einarsson

Leikmaður Torquay í tíu leikja bann fyrir að bíta

Joss Labadie (til hægri).

Joss Labadie (til hægri).

Canon

Mynd: Getty Images

Joss Labadie, leikmaður Torquay, hefur verið úrskurðaður í tíu leikja bann fyrir að bíta andstæðing.

Þetta er jafn langt bann og Luis Suarez fékk þegar hann beit Branislav Ivanovic varnarmann Chelsea í leik liðanna í fyrra.

Labadie beit Ollie Banks leikmann Chesterfield í leik liðanna í ensku D-deildinni um síðustu helgi.
Dómarar leiksins sáu ekki atvikið en Banks kvartaði yfir því eftir leik að Labadie hefði bitið hann.

Enska knattspyrnusambandið skoðaði málið og hefur nú dæmd Labadie í tíu leikja bann en hann þarf einnig að borga 2000 pund í sekt.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.