Fotbolti.net
12.03.16 - 06:00
Arnar Geir Halldórsson

Hafdís og Katla í Aftureldingu (Staðfest)

Hafdís Erla Gunnarsdóttir

Hafdís Erla Gunnarsdóttir

Canon

Mynd: Afturelding

Kvennaboltinn
Hafdís Erla Gunnarsdóttir og Katla Rún Arnórsdóttir munu leika með Aftureldingu í 1.deild kvenna næsta sumar.
Katla er 20 ára varnarmaður og er uppalin í Val. Hún var í láni á Selfossi sumarið 2013 en síðustu tvö sumur hefur hún gert lánssamninga við Aftureldingu og spilað alls 16 meistaraflokksleiki fyrir félagið. Hún hefur nú ákveðið að skipta alveg yfir í Aftureldingu.

Katla á að baki 2 leiki með U19 landsliði Íslands og 5 leiki með U17 landsliðinu.

Hafdís Erla verður nítján ára á árinu og á að baki 15 leiki með FH. Hún varði mark FH sem varð í öðru sæti í 1.deild sumarið 2015 og á einnig 4 leiki í Pepsi deildinni frá 2014.

Hún hefur leikið 10 leiki með U17 landsliði Íslands og 3 með U16 landsliðinu.

Afturelding mun leika í 1.deild næsta sumar eftir að hafa fallið úr Pepsi-deildinni á síðustu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.