Fotbolti.net
12.03.20 - 22:25
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ítalski boltinn

Mikel Arteta og Paulo Dybala greinast með Kórónaveiruna

Mikel Arteta og Paulo Dybala greinast með Kórónaveiruna
Canon

Mynd: Getty Images

Arsenal hefur sent frá sér tilkynningu um að Mikel Arteta hafi verið prófaður fyrir kórónaveirunni og er niðurstaðan jákvæð.

Arsenal hefur lokað London Colney, æfingasvæði sínu eftir niðurstöðu prófanna á Arteta. Þá segir einnig að þeir sem hafi nýlega verið í návist Arteta fari í sóttkví.

Arsenal býst við að þetta sé talsverður fjöldi starfsmanna auk allra leikmanna Arsenal liðsins sem fari í sóttkví.
Arsenal ætlar að djúprheinsa æfingasvæði sitt og þeir sem hafa ekki unnið í nálægð við Arteta að undanförnu munu mæta til starfa líkt og venjulega.

Þá segir einnig að Paulo Dybala, leikmaður Juventus, sé með veiruna. Þetta segir í frétt El Nacional en í gær var Daniele Rugani greindur með veiruna en hann er samherji Dybala hjá Juventus.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.