Abramovich ekki lengur stjórnandi hjá Chelsea (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildin var að staðfesta rétt í þessu að Roman Abramovich hefur verið úrskurðaður sem 'vanhæfur' og stjórnar ekki lengur úrvalsdeildarfélaginu Chelsea.
Mikið hefur verið rætt um framtíð Chelsea undanfarna daga enda eru rúmar tvær vikur liðnar síðan Rússland réðst inn í Úkraínu og á Abramovich mikilvæg viðskiptatengsl við rússneska ríkið og rússneska herinn.
Af þeim ástæðum ákvað breska ríkisstjórnin að refsa Abramovich með ýmsum aðgerðum sem hafa leitt til þess að hann er ekki lengur stjórnandi hjá Chelsea.
„Í kjölfar refsiaðgerða bresku ríkisstjórnarinnar hefur stjórn ensku úrvalsdeildarinnar úrskurðað Roman Abramovich sem vanhæfan stjórnanda og hefur hann því verið fjarlægður úr stöðu sinni innan félagsins," segir í yfirlýsingu frá úrvalsdeildinni.
Ef fer sem horfir mun Abramovich ekki fá eitt sent fyrir sölu Chelsea, sem er metið á tæplega 3 milljarða punda.
