Aron Freyr heim í Víði (Staðfest)


Mynd: Víðir


Mynd: Víðir
Þriðjudeildarlið Víðis frá Garði var að fá mikinn liðsstyrk því Aron Freyr Róbertsson mun leika með liðinu í sumar.
Aron Freyr er uppalinn í Garði og hefur leikið fyrir flest Suðurnesjaliðin á ferlinum. Hann á leiki að baki fyrir Keflavík, Njarðvík og Grindavík auk Hauka en þá á hann einnig eitt tímabil að baki með Víði, árið 2013.
Aron Freyr býr yfir mikilli reynslu úr íslenska boltanum og lék síðast með Haukum í 2. deild en á sínum yngri árum spilaði hann meðal annars fyrir unglingalandsliðin U19 og U21.
„Við í Víðir erum afar ánægð að fá Aron inn í hópinn og er hann mikill liðsstyrkur fyrir okkur með mikla reynslu hann hefur leikið 174 leiki og skorað 24 mörk," segir í yfirlýsingu frá Víði.
„Hlökkum til að sjá Aron ásamt liðsfelögum á vellinum í sumar- VELKOMIN HEIM"
