Arsenal orðað við þrjá - Zirkzee vill fara frá Man Utd sem vill fá Murillo - Kinsky fer á láni
banner
   fim 12. mars 2026 17:00
Elvar Geir Magnússon
Óvænt nafn orðað við stjórastól Tottenham
Mynd: EPA
Sean Dyche er óvænt orðaður við stjórastöðu Tottenham Hotspur í enska götublaðinu The Sun.

Blaðið segir þó að Igor Tudor verði áfram bráðabirgðastjóri í næsta leik en liðið hefur tapað öllum fjórum leikjunum undir hans stjórn. Næsti leikur er gegn Liverpool um helgina og Tottenham gæti farið niður í fallsæti.

Hvert leitar Tottenham ef félagið gefst upp á Tudor?

The Sun segir að Dyche væri líklegur ef Tudor verður látinn fara. Dyche er án félags eftir að hafa verið látinn taka pokann sinn hjá Nottingham Forest fyrir mánuði síðan.

Sagt er að Dyche sé tilbúinn að skoða það að verða annar bráðabirgðastjóri Tottenham á tímabilinu.
Athugasemdir
banner