Arsenal orðað við þrjá - Zirkzee vill fara frá Man Utd sem vill fá Murillo - Kinsky fer á láni
banner
   fim 12. mars 2026 11:00
Elvar Geir Magnússon
Telja líklegast að Írak verði með á HM ef Íran tekur ekki þátt
Mynd: EPA
Ahmad Donyamali, íþróttamálaráðherra Írans, útilokaði í gær að þjóðin tæki þátt á HM í sumar eftir að æðstiklerkur landsins, Ayatollah Ali Khamenei, féll í loftárásum Bandaríkjanna og Ísraels fyrir um tveimur vikum.

Íran á að vera í G-riðli með Belgíu, Egyptalandi og Nýja Sjálandi. En ef Íran tekur ekki þátt, hverjir taka sætið?

Mirror fjallar um málið. Þar eru taldir tveir möguleikar; Sameinuðu arabísku furstadæmin eða Írak.

Furstadæmin enduðu í sætinu fyrir neðan Íran í undankeppninni en liðið tapaði fyrir Írak í umspili.

Írak á fyrir höndum leik við Bólivíu eða Súrinam um sæti á HM en sögusagnir eru um að FIFA gæti gefið þeim beint sæti á HM og hleypt Sameinuðu arabísku furstadæmunum í umspilið.

HM hefst 11. júní en mótið verður haldið í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.
Athugasemdir
banner