Fotbolti.net
12.04.13 - 16:03
Magnús Már Einarsson

Andri Steinn í Hauka (Staðfest)

Andri Steinn í Hauka (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Andri Steinn Birgisson hefur gengið til liðs við Hauka en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag.

Andri Steinn gerði samning við Hauka út þetta tímabil en hann hefur æft með liðinu í vikunni.
Þessi 29 ára gamli miðjumaður kemur til Hauka frá Víkingi R. en hann fékk fyrr í vikunni leyfi til að ræða við önnur félög.

Andri Steinn kom til Víkings síðastliðið haust eftir að hafa leikið með Leikni R. í fyrra en Haukar sýndu einnig áhuga í haust.

Á ferli sínum hefur Andri Steinn einnig leikið með Fjölni, Fylki, Aftureldingu, Fram, Grindavík, Keflavík og í Noregi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.