12.04.13 - 13:35
Magnús Már Einarsson
Magnús Bernhard í KV (Staðfest)

Magnús Bernhard og Björn Berg Gunnarsson framkvæmdastjóri KV.

Mynd: KV

Sóknarmaðurinn Magnús Bernhard Gíslason hefur ákveðið að ganga til liðs við sitt gamla félag KV frá Gróttu. Magnús, sem skoraði 9 mörk í 10 deildarleikjum í fyrra er markahæsti leikmaður í sögu KV en hann lék með liðinu árin 2005-2010.
Páll Kristjánsson, formaður og þjálfari KV, er ánægður með að fá Magnús heim. ,,Við erum afskaplega ánægðir með að fá Magga aftur heim í Vesturbæinn og ég er viss um að stuðningsmenn taka vel á móti honum. Svo er hann líka svo helvíti huggulegur!“ sagði Páll.
Magnús er öflugur sóknarmaður sem skorað hefur 66 mörk í 94 leikjum í deild og bikar undanfarin 7 ár. Hann er uppalinn KR-ingur en gekk til liðs við KV strax við stofnun félagsins 2005 og var oftar en ekki markakóngur liðsins.
Aðspurður segir Björn Berg Gunnarsson, framkvæmdastjóri KV, endurkomu Magnúsar sýna að Vesturbæingar séu stórhuga fyrir komandi átök.
,,Við þekkjum allir Magnús mjög vel og bindum miklar vonir við hann í deildinni í sumar. Eftir mjög gott gengi í 2. deildinni í fyrra höfum við styrkt liðið töluvert og búum nú yfir mikilli breidd og sennilega einhverri sterkustu sóknarlínu í 1. og 2. deild með þá Magnús, Brynjar Orra Bjarnason og Gunnar Kristjánsson. Við förum ekkert í felur með þann metnað okkar að koma liðinu í 1. deild og þessi félagaskipti sýna að það verður blússandi sókn í Vesturbænum í sumar.“