Fotbolti.net
12.04.16 - 09:36
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Brocchi ráðinn þjálfari AC Milan til sumars (Staðfest)

Cristian Brocchi er tekinn við AC Milan.

Cristian Brocchi er tekinn við AC Milan.

Canon

Mynd: Getty Images

AC Milan hefur staðfest þann háværa orðróm sem var í gangi í gærkvöldi. Sinisa Mihajlovic hefur verið rekinn sem þjálfari félagsins.

Cristian Brocchi stýrir liðinu út tímabilið en hann og Adriano Galliani, varaforseti AC Milan, eyddu saman þremur klukkustundum yfir kvöldverði í gær.
Í yfirlýsingu frá AC Milan er Mihajlovic þakkað fyrir hans störf.

Cristian Brocchi er 40 ára en hann er uppalinn í herbúðum AC Milan og lék á sínum tíma um 100 leiki fyrir félagið. Hann lagði skóna á hilluna 2013 eftir fimm ára dvöl hjá Lazio.

Brocchi hefur starfað við unglingaþjálfun hjá AC Milan.

Milan er í sjöunda sæti ítölsku A-deildarinnar en liðið hefur verið á niðurleið síðan það vann meistaratitilinn 2011. Allt stefnir í að liðinu mistakist þriðja árið í röð að komast í Evrópukeppni.

Mihajlovic var fjórði þjálfari AC Milan á innan við tveimur árum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.