Fotbolti.net
12.04.16 - 16:30
Magnús Már Einarsson

Gunnar Örvar aftur í Þór (Staðfest)

Gunnar Örvar aftur í Þór (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Gunnar Örvar Stefánsson hefur gengið til liðs við Þór á nýjan leik eftir að hafa verið hjá Vado FC í ítölsku D-deildinni undanfarna mánuði.

Gunnar gerði stuttan samning við Vado í desember síðastliðnum.
Gunnar Örvar er 21 árs gamall en hann er uppalinn hjá KA.

Eftir dvöl í Noregi í fyrravetur gekk Gunnar Örvar til liðs við Þór síðastliðið vor þar sem hann skoraði fimm mörk í 1. deildinni í fyrra.

Gunnar mun nú leik áfram með Þórsurum í fyrstu deildinni í sumar en hann fékk félagaskipti í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.