Fotbolti.net
12.04.17 - 17:30
Elvar Geir Magnússon

Bandaríkjakona og markvörður í ÍR (Staðfest)

Eva Ýr Helgadóttir.

Eva Ýr Helgadóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Kvennalið ÍR hefur bætt við sig tveimur leikmönnum fyrir komandi baráttu í 1. deild kvenna.

Eva Ýr Helgadóttir er markmaður sem kemur á lánssamningi frá Fylki. Eva er fædd árið 1996 og á að baki tæplega 50 leiki í meistaraflokki, langflesta með Árbæjarliðinu en var í láni hjá Fjölni á liðnu sumri.

Hún stundar nú nám í Bandaríkjunum en kemur til landsins í upphafi maí og til liðs við ÍR þá.

Á dögunum skrifaði svo bandaríski leikmaðurinn Mykaylin Rosenquist undir samning. Mykalin er 180 sm. á hæð, varnarmaður að upplagi en hefur líka leikið á miðsvæðinu.

ÍR tapaði fyrir Grindavík í úrslitakeppni 1. deildarinnar í fyrra og tókst því ekki að komast upp.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.