12.04.17 - 22:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Drogba nýr leikmaður og eigandi Phoenix Rising (Staðfest)

Rándýr mynd. Drogba ásamt Francesco Totti.

Mynd: Getty Images

Didier Drogba, fyrrum sóknarmaður Chelsea, hefur gengið til liðs við Phoenix Rising í Bandaríkjunum. Hann verður bæði leikmaður liðsins og meðeigandi.
Hinn 39 ára gamli Drogba hefur ekki spilað fótbolta síðan hann yfirgaf Montreal Impact í nóvember síðastliðnum.

Hann er nú kominn til Phoenix, en þar stefna menn á það að verða eitt þeirra lið sem kemst inn í MLS-deildina á næstu árum.
„Að eiga lið og að vera leikmaður á sama tíma er óvenjulegt, en þetta verður mjög spennandi,\" sagði Drogba.
„Þetta eru góð skipti þar sem ég vil halda áfram að spila, en ég næstum því fertugur og það er mikilvægt fyrir mig að undirbúa feril sem ég get átt eftir að leikmannaferli mínum lýkur.\"
Drogba segist hafa fengið mörg önnur tilboð.
„Ég fékk tilboð frá Kína, frá Englandi - bæði frá liðum í úrvalsdeild og Championship - en þau tilboð voru bara fyrir mig sem leikmann,\" sagði Drogba sem ætlar að halda áfram að starfa við fótbolta þegar leikmannaferlinum lýkur.