Fotbolti.net
12.04.17 - 21:54
Elvar Geir Magnússon

Steinar Örn markvörður í ÍR (Staðfest)

Steinar Örn markvörður í ÍR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Steinar Örn Gunnarsson markvörður úr Fjölni hefur gengið til liðs við ÍR á láni. Steinar er 26 ára og á að baki 34. leiki með Fjölni.

ÍR-ingar unnu 2. deildina í fyrra og eiga leik gegn Selfossi í 1. umferð Inkasso-deildarinnar föstudaginn 5. maí.
Magnús Þór Magnússon hefur varið mark ÍR-inga undanfarin ár en hann verður ekki með liðinu í sumar.

Steinar Örn lék fjóra leiki með Fjölni í Pepsi-deildinni í fyrra.

Þórður Ingason er aðalmarkvörður Fjölnismanna og mun Jökull Blængsson, sem hefur verið í U21-landsliðinu, veita honum samkeppni í Grafarvoginum í sumar.

Komnir:
Axel Kári Vignisson frá Keflavík
Kristján Pétur Þórarinsson frá FH
Jordan Farahani frá Hetti
Reynir Haraldsson frá Fylki
Stefán Þór Pálsson frá Víkingi R.
Viktor Örn Guðmundsson frá KV
Steinar Örn Ginnarsson frá Fjölni (lán)

Farnir:
Alexander Kostic í Gróttu
Andri Már Hermannsson í Gróttu
Árni Þór Jakobsson í Þrótt R. (Var á láni)
Daði Ólafsson í Fylki (Var á láni)
Sigurður Gísli Snorrason í FH (Var á láni)
Styrmir Erlendsson í Fylki (Var á láni)
Myndin er tekin við undirritun þar sem Steinar og Matthías Imsland varaformaður Knattspyrnudeildar ÍR innsigluðu samstarfið.

Myndin er tekin við undirritun þar sem Steinar og Matthías Imsland varaformaður Knattspyrnudeildar ÍR innsigluðu samstarfið.

Canon

Mynd: ÍR

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.