Fotbolti.net
12.04.17 - 22:42
Elvar Geir Magnússon

Uxinn gerði tveggja ára samning við Selfoss (Staðfest)

Elvar Ingi er kominn í Selfoss.

Elvar Ingi er kominn í Selfoss.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sóknarmaðurinn Elvar Ingi Vignisson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Selfoss en hann kemur til félagsins frá ÍBV.

Elvar, sem er 22 ára, gengur undir gælunafninu Uxinn enda sterkbyggður sóknar- og kantmaður.
Hann lék sextán leiki með Eyjamönnum í Pepsi-deildinni í fyrra og skoraði tvö mörk. Hann er uppalinn í Aftureldingu en lék með Fjarðabyggð í 1. deildinni sumarið 2015.

„Ég er mjög ánægður með að hafa fengið Elvar Inga til liðs við okkur. Hann hefur alltaf þótt mjög efnilegur leikmaður en þetta er strákur sem ég hef fylgst með síðan hann labbaði á höndum inn á fyrstu 7. flokks æfinguna hjá mér í Mosfellsbæ,“ segir Gunnar Borgþórsson, þjálfari Selfoss.

„Elvar Ingi bætir miklu við liðið okkar og er óhefðbundinn leikmaður. Hann er gríðarlega stór og sterkur og ekki kallaður Uxinn að ástæðulausu. Hann mun nýtast okkar leikstíl vel og koma til dæmis sterkur inn í uppsettu leikatriðin okkar.“

Selfoss hafnaði í áttunda sæti Inkasso-deildarinnar í fyrra.

Selfoss:

Komnir:
Alfi Conteh-Lacalle frá Noregi
Guðjón Orri Sigurjónsson frá Stjörnunni
Hafþór Þrastarson frá Fram
Elvar Ingi Vignisson frá ÍBV

Farnir:
Arnór Gauti Ragnarsson í Breiðablik (Var á láni)
Vignir Jóhannesson í FH
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.