12.04.22 - 12:12
Brynjar Ingi Erluson
Fram fær miðvörð frá Midtjylland (Staðfest)

Mynd: Fram

Mynd: Fram
Fram hefur gengið frá samkomulagi við ástralska miðvörðinn Hosine Bility en hann kemur á láni frá danska félaginu Midtjylland. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.
Bility, sem er 20 ára gamall, kom til Midtjylland frá enska liðinu Croydon fyrir þremur árum og hefur leikið fyrir unglinga- og varalið danska liðsins.
Hann á enn eftir að spila meistaraflokksleik með Midtjylland en mun sækja sér mikla reynslu í sumar og spila með Fram.
Framarar misstu Kyle McLagan til Víkings eftir síðasta tímabil og var mikil þörf á að fá varnarmann í stað hans.
Bility hefur þá verið viðloðandi U21 árs lið Ástralíu en Fram bindir miklar vonir við leikmannin.

Við Frammarar bjóðum velkominn okkar nýjasta liðsstyrk í meistaraflokk karla, Hosine Bility!
— FRAM knattspyrna (@FRAMknattspyrna) April 12, 2022
Við Frammarar bindum miklar vonir við Hosine og hlökkum til að sjá þennan öfluga leikmann í bláu treyjunni í deild þeirra bestu á Íslandi í sumar! pic.twitter.com/bplDGBRVDh