Fotbolti.net
12.04.22 - 13:40
Brynjar Ingi Erluson

Leipzig fær efnilegasta markvörð Belgíu (Staðfest)

Maarten Vandevoordt

Maarten Vandevoordt

Canon

Mynd: Getty Images

Þýska félagið RB Leipzig hefur komist að samkomulagi við Genk um kaup á belgíska markverðinum Maarten Vandevoordt.
Vandevoordt er tvítugur og uppalinn hjá Genk en hann hefur verið aðalmarkvörður liðsins síðustu tvö tímabil.

Hann hefur þá leikið fyrir öll yngri landslið Belgíu og er nú aðalmarkvörður U21 árs landsliðsins.

Vandevoordt þykir efnilegasti markvörður landsins og hefur spænska félagið Barcelona meðal annars sýnt honum mikinn áhuga síðustu mánuði en markvörðurinn hefur tekið ákvörðun um framtíð sína.

Hann mun ganga í raðir Leipzig árið 2024 og var það samkomulag tilkynnt í dag.

Leikmaðurinn mun því spila næstu tvö tímabil með Genk og þróa leik sinn áður en hann heldur til Þýskalands.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.