12.05.13 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Agnar Darri og Bergur í Magna (Staðfest)

Bergur Jónmundsson.

Mynd: 640.is - Hafþór Hreiðarsson

Bergur Jónmundsson.

Mynd: 640.is - Hafþór Hreiðarsson
Magni Grenivík hefur fengið Agnar Darra Sverrisson og Berg Jónmundsson til liðs við sig á láni.
Agnar Darri kemur á láni frá Víkingum en þessi 19 ára gamli leikmaður spilar frammi og á kantinum.
Agnar Darri kemur á láni frá Víkingum en þessi 19 ára gamli leikmaður spilar frammi og á kantinum.
Agnar skoraði fjögur mörk með Magna sumarið 2011 en í fyrra skoraði hann eitt mark í sjö deildar og bikarleikjum með Víkingi.
Bergur kemur á láni frá Völsungi en hann getur leikið bæði á miðjunni og í vörninni.
Bergur hefur á ferli sínum leikið 45 leiki með Völsungi en hann spilaði þrettán leiki þegar liðið vann 2. deildina í fyrra.