12.05.13 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Fjarðabyggð fær ástralskan markvörð (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Raggi Óla


Mynd: Fótbolti.net - Raggi Óla
Fjarðabyggð hefur fengið ástralska markvörðinn Kile Gerald Kennedy í sínar raðir.
Þessi 24 ára gamli leikmaður mun verja mark liðsins í 3. deildinni í sumar.
Þessi 24 ára gamli leikmaður mun verja mark liðsins í 3. deildinni í sumar.
Kile hefur leikið bæði í Ástralíu og Bandaríkjunum. Í Bandaríkjunum lék hann með Alabama háskólanum undir leiðsögn núverandi þjálfara Fjarðabyggðar, Brynjars Gestssonar.
Kile er mættur til landsins og verður með Fjarðabyggð í leik gegn Sindra í Borgunarbikarnum á þriðjudag.
Kile er mættur til landsins og verður með Fjarðabyggð í leik gegn Sindra í Borgunarbikarnum á þriðjudag.
