12.05.13 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Gísli Freyr og Eiríkur Páll í Einherja (Staðfest)

Gísli Freyr Ragnarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gísli Freyr Ragnarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Einherji frá Vopnafirði hefur styrkt sig fyrir átökin í 4. deildinni í sumar en félagið hefur fengið Gísla Freyr Ragnarsson og Eirík Pál Aðalsteinsson í sínar raðir.
Gísli Freyr kemur frá Njarðvík en þessi 22 ára gamli miðjumaður lék síðast með Vopnfirðingum 2009 og 2010.
Eiríkur Páll kemur frá Dalvík/Reyni en hann spilaði með Einherja 2003 og 2004.
Báðir leikmennirnir eru komnir með leikheimild fyrir leik Einherja gegn Hetti í Borgunarbikarnum á þriðjudag.
Eiríkur Páll kemur frá Dalvík/Reyni en hann spilaði með Einherja 2003 og 2004.
Báðir leikmennirnir eru komnir með leikheimild fyrir leik Einherja gegn Hetti í Borgunarbikarnum á þriðjudag.
