Fotbolti.net
12.05.13 - 07:30
Magnús Már Einarsson

Hermann Ágúst og Kristján Einar í Hamar (Staðfest)

Hermann Ágúst Björnsson.

Hermann Ágúst Björnsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hamar frá Hveragerði hefur fengið Hermann Ágúst Björnsson og Kristján Einar Auðunsson til liðs við sig á láni frá Þrótti.

Báðir leikmennirnir léku sinn fyrsta leik með Hamar í 1-1 jafntefli liðsins gegn Sindra í fyrstu umferðinni í 2. deildinni í gær.
Hermann Ágúst er fæddur árið 1992 en hann skoraði eitt mark í átta leikjum með Þrótti í 1. deildinni í fyrra.

Kristján Einar er einnig fæddur 1993 en hann hefur samtals leikið tólf bikar og deildarleiki með Þrótti undanfarin ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.