12.05.14 - 11:19
Magnús Már Einarsson
Andri Geir í HK (Staðfest)

Andri Geir Alexandersson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Andri Geir Alexandersson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Andri Geir Alexandersson hefur gengið til liðs við HK en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Andri Geir er 23 ára gamall miðvörður en hann hefur leikið allan sinn feril með ÍA.

Andri Geir spilaði sjö leiki í Pepsi-deildinni í fyrra en hann fór erlendis vegna náms á miðju tímabilinu.
,,Ég er ánægður með að fá sterkan strák eins og Andra í baráttuna með okkur og að hann skyldi velja þann kost að koma í HK. Hann ætti að falla vel inn í okkar lið á þessum tímapunkti,\" sagði Þorvaldur Örlygsson þjálfari HK.
Þorvaldur þekkir til Andra eftir að hafa þjálfað hann hjá ÍA á síðasta tímabili.
Andri gæti leikið sinn fyrsta leik með HK þegar liðið mætir Víkingi Ólafsvík í Borgunarbikarnum á morgun en sá leikur fer fram í Akraneshöllinni.

Heimild: Heimasíða HK