Fotbolti.net
12.05.14 - 17:30
Magnús Már Einarsson

Dalvík/Reynir fær sex nýja leikmenn (Staðfest)

Bessi Víðisson.

Bessi Víðisson.

Canon

Mynd: Aðsend mynd

Dalvík/Reynir í 2. deildinni hefur fengið sex nýja leikmenn í sínar raðir fyrir átökin í annarri deildinni í sumar.
Bessi Víðisson er 23 ára sóknarmaður og kemur á láni frá KA. Bessi lék 93 leiki fyrir Dalvíkinga áður en hann skipti yfir í KA og skoraði í þeim 32 mörk en hann var í liði ársins í 2. deildinni árið 2012.

Viktor Daði Sævaldsson, Sindri Ólafsson og Lars Óli Jessen eru einnig komnir til Dalvíkur/Reynis.

Viktor Daði og Sindri eru fæddir árið 1997 og ættu að vera Dalvíkingum kunnugir en þeir eru uppaldnir þar. Þeir koma báðir frá KA. Lars Óli er fæddur árið 1990 kemur frá Magna, Grenivík.

Fyrr í vetur höfðu Gunnar Már Magnússon og Steinþór Már Auðunsson gengið aftur til liðs við Dalvík/Reyni en þeir koma báðir frá KA. Gunnar Már er 27 ára miðjumaður og er uppalinn á Dalvík en hann hefur spilað 150 leiki fyrir félagið og skorað í þeim 51 mark.

Steinþór Már er 23 ára markvörður. Hann hefur leikið 54 leiki fyrir Dalvík/Reyni síðustu tímabil en hefur þá verið á láni frá KA.

Allir leikmennirnir nema Bessi tóku þátt í sigurleiknum gegn Ægi í fyrstu umferðinni í 2. deildinni síðastliðinn laugardag.
Gunnar Már Magnússon (til vinstri).

Gunnar Már Magnússon (til vinstri).

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.