12.05.14 - 20:12
Ívan Guðjón Baldursson
Rio Ferdinand fær ekki nýjan samning (Staðfest)

Ólíklegt er að leiðir Rio og Rauðu djöflanna verði aðskildar í of langan tíma

Mynd: Getty Images

Hinn 35 ára Rio Ferdinand fær ekki nýjan samning hjá Manchester United og er því frjáls ferða sinna í sumar.
Það hafa ekki mörg félög verið orðuð við leikmanninn en líklegt er að Harry Redknapp vilji hann til QPR. Þá er einnig talið að félög úr Úrvalsdeildinni og MLS deildinni í Bandaríkjunum hafi einnig áhuga.

Nemanja Vidic hefur einnig spilað sinn síðasta leik fyrir Man Utd og fékk serbneski varnarmaðurinn glæsilega kveðju, og er Rio Ferdinand svekktur með að hafa ekki fengið svipaða kveðju.
,,Aðstæður leyfðu mér ekki að kveðja á þann hátt sem ég vildi,\" sagði Ferdinand eftir tólf ár í Manchester.
,,Ég vil nýta tækifærið til að þakka liðsfélögunum. Mér líður vel, ég er heilbrigður og tilbúinn í næstu áskorun.\"