Fotbolti.net
12.05.16 - 15:37
Magnús Már Einarsson

Arnór Ingvi til Rapid Vín á metfé (Staðfest)

Arnór Ingvi Traustason.

Arnór Ingvi Traustason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

IFK Norrköping hefur staðfest að Arnór Ingvi Traustason muni fara frá félaginu til Rapid Vín í Austurríki eftir EM í sumar.

Samkvæmt fréttum frá Austurríki mun Rapid borga meira en tvær milljónir evra fyrir Arnór og því verður hann dýrasti leikmaðurinn í sögu félagsins.

Rapid Vín er sigursælasta félagið í sögu Austurríkis en liðið hefur 32 sinnum orðið meistari. Liðið mun enda í öðru sæti á þessu tímabili, sama hvernig lokaumferðin fer um helgina.

Hinn 23 ára gamli Arnór hefur slegið í gegn hjá Norrköping síðan hann kom til félagsins frá Keflavík árið 2014. Arnór varð í fyrra sænskur meistari með Norrköping en hann mun nú róa á önnur mið.
„Rapid Vín er rosalega flottur klúbbur. Þetta er það félag í Austurríki sem hefur mestu söguna og er alltaf í Evrópukeppni eða Meistaradeildinni. Það heillar mikið að fá að spila á þessu sviði og berjast um titilinn,\" sagði Arnór í viðtali við Fótbolta.net á dögunum.

„Það er mikilvægt að taka ekki of stórt skref því það skiptir miklu máli að ég sé að spila. Maður tekur þetta í skrefum. Tíminn í Svíþjóð hefur verið mjög góður en ég tel að þetta sé rétti tíminn fyrir mig að fara annað.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.