Fotbolti.net
12.05.16 - 11:33
Elvar Geir Magnússon

Pochettino með nýjan samning við Spurs (Staðfest)

Pochettino er gríðarlega geðþekkur.

Pochettino er gríðarlega geðþekkur.

Canon

Mynd: Getty Images

Gleðifréttir fyrir stuðningsmenn Tottenham. Mauricio Pochettino hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem gildir til 2021.

Pochettino hefur gert frábæra hluti með Spurs og var liðið helsti keppinautur Leicester um enska meistaratitilinn í vetur.
Þessi 44 ára Argentínumaður var upphaflega ráðinn í maí 2014 þegar hann gerði fimm ára samning og stýrði liðinu í fimmta sæti úrvalsdeildarinnar og úrslitaleik deildabikarsins á fyrsta tímabili við stjórnvölinn.

Ein umferð er eftir og ljóst að Spurs fær beint sæti í Meistaradeild Evrópu.

Við undirskriftina sagðist Pochettino að trú væri innan félagsins um að þetta væri aðeins byrjunin á stærra ævintýri.

Sögusagnir voru í gangi um að Manchester United hafi viljað fá Pochettino en stuðningsmenn Spurs geta farið að anda rólega.

Sjá einnig:
Hver er maðurinn á bak við titilvonir Tottenham?
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.