12.05.16 - 13:08
Ívan Guðjón Baldursson
Roberto Martinez rekinn frá Everton (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Búið er að reka Roberto Martinez úr starfi sínu sem knattspyrnustjóri Everton fyrir lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Stuðningsmenn Everton snerust gegn Martinez er tók að líða á tímabilið og voru raddir þeirra orðnar gífurlega háar eftir 4-0 tap gegn nágrönnunum og erkifjendunum í Liverpool.

Í kjölfarið datt félagið út í undanúrslitum FA bikarsins eftir tap gegn Manchester United og þá var von Martinez um að halda starfi sínu eftir tímabilið orðin afar veik.
Martinez var svo loks rekinn í morgun, tæplega 20 klukkustundum eftir 3-0 tap gegn Sunderland sem tryggði þeim síðarnefndu áframhaldandi veru í ensku úrvalsdeildinni.
Everton er í 12. sæti úrvalsdeildarinnar með 44 stig, en markmið félagsins fyrir tímabilið var að berjast um Evrópusæti.