Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   mið 12. maí 2021 17:31
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gunnar Örvar lánaður til Dalvíkur/Reynis (Staðfest)
Gunnar Örvar Stefánsson.
Gunnar Örvar Stefánsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dalvík/Reynir hefur fengið sóknarmanninn Gunnar Örvar Stefánsson á láni frá KA.

Dalvík/Reynir tilkynnti það í dag að sóknarmaðurinn stóri og stæðilegi sé kominn á láni frá KA. Þetta er mikill liðsstyrkur fyrir Dalvík/Reyni sem leikur í 3. deild.

Gunnar var á láni hjá St. Andrews á Möltu í vetur. Gunnar er 27 ára gamall en hann hefur einnig leikið með Þór og Magna á sínum meistaraflokksferli.

Gunnar Örvar hefur aldrei spilað í 2. eða 3. deild en hann hefur gert mjög fína hluti í næst efstu deild með Magna og Þór. Þetta er því eins og áður segir mikill liðsstyrkur fyrir Dalvík/Reyni sem hlýtur að stefna upp.

Athugasemdir
banner
banner