Fotbolti.net
03.10.26 - 19:06
Elvar Geir Magnússon

Mikael í bann, Gylfi í myndatöku og lykilmenn laskaðir - Arnar hyggst bæta í hópinn

Mikael Egill Ellertsson í leiknum gegn Búlgaríu.

Mikael Egill Ellertsson í leiknum gegn Búlgaríu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Mikael Egill Ellertsson skoraði þriðja mark Íslands í 3-0 sigrinum gegn Búlgaríu á Laugardalsvelli en hann tekur ekki þátt í síðasta leiknum í glugganum, gegn Eistum í Tallinn á þriðjudag, þar sem hann tekur út leikbann.

Þá er óvíst með Gylfa Þór Sigurðsson en hann er á leið í myndatöku eftir höggið sem hann fékk í síðuna í lok leiks. Arnar Gunnlaugsson þjálfari Íslands greindi frá því á fréttamannafundi.
„Hann bar sig þokkalega vel eftir leikinn. En ef hann er rifbeinsbrotinn þá er það náttúrulega svekkjandi," sagði Arnar Gunnlaugsson.

Þá segir hann að Hákon Arnar Haraldsson sé laskaður og minntist einnig á Orra Stein Óskarsson fyrirliða.

„Menn eru búnir að spila mikið. Það var gott að geta hvílt nokkra. Ég hefði viljað geta tekið Orra og Hákon út aðeins fyrr en mér fannst bara leikurinn ekki alveg bjóða upp á það."

Gullið tækifæri
Arnar ætlar að bæta við hópinn fyrir ferðina til Eistlands.

„Já, ég held það. Ég held að við þurfum að fylla aðeins í ákveðin göt og þarna svo líka að álagsstýra. Maður veit ekki hvort Stefán (Teitur Þórðarson) geti tekið þátt í leiknum."

„Þetta er svo gullið tækifæri að fara til Eistlands og og koma okkur í frábæra stöðu fyrir nóvembergluggann með sigri þar. Eistar eru búnir að koma á óvart. Mér finnst þeir vera sterkari heldur en
Aserbaísjan þó þeir séu á svipuðum slóðum á FIFA-listanum,"
sagði Arnar Gunnlaugsson.
Gylfi Þór Sigurðsson.

Gylfi Þór Sigurðsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.