Fotbolti.net
03.10.26 - 19:48
Kári Snorrason

Orri með augastað á markametinu - „Ísak duglegur að minna mig á þetta“

Auglýsing
Frá fyrra marki Orra í dag.

Frá fyrra marki Orra í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
„Mjög sáttur með sigurinn og frammistöðuna í heild,“ segir landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson í samtali við Fótbolta.net eftir 3-0 sigur á Búlgaríu í C-deild Þjóðadeildarinnar.

Orri skoraði tvö mörk og lagði upp eitt til viðbótar. Hann brenndi af vítaspyrnu sem hefði innsiglað þrennuna.
Markahæstu landsliðsmenn frá upphafi - Orri og Andri á miklu skriði
TENGT EFNI

Markahæstu landsliðsmenn frá upphafi - Orri og Andri á miklu skriði

Lestu um leikinn: Ísland 3 - 0 Búlgaría
„Það var svekkjandi en það er eins og það er, maður verður að kyngja því. Við unnum leikinn 3-0 og ég skoraði tvö, það er ekki hægt að kvarta yfir neinu ef ég á að vera hreinskilinn,“ segir Orri aðspurður um vítaklúðrið.

Orri hefur nú skorað tólf mörk í 21 landsleik með Íslandi. „Ísak Bergmann er duglegur að minna mig á það. Mig langar einhvern tímann að reyna slá markametið. Akkúrat núna er ég mest einbeittur á frammistöðu og úrslit liðsins,“ segir Orri að lokum.
Ísak Bergmann duglegur að minna Orra á markahlutfall hans.

Ísak Bergmann duglegur að minna Orra á markahlutfall hans.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.