fim 12. maí 2022 18:28
Brynjar Ingi Erluson
Aston Villa kaupir Coutinho frá Barcelona (Staðfest)
Philippe Coutinho mun spila með Villa til 2026
Philippe Coutinho mun spila með Villa til 2026
Mynd: Aston Villa
Aston VIlla hefur gengið frá kaupum á brasilíska sóknartengiliðnum Philippe Coutinho frá Barcelona fyrir 17,2 milljónir punda en enska félagið staðfesti kaupin á heimasíðu sinni í dag.

Villa fékk Coutinho á láni frá Börsungum í janúarglugganum en hann hefur komið með mikinn ferskleika inn í liðið undir stjórn Steven Gerrard.

Enska félagið var með kaupréttinn á honum og gat Villa fengið hann fyrir litlar 17,2 milljónir punda en Barcelona keypti hann upprunalega frá Liverpool fyrir fjórum árum fyrir 114 milljónir punda.

Coutinho gerir fjögurra ára samning við Villa til 2026 en Gerrard er hæstánægður með að gera þessi skipti varanleg.

„Þetta eru geggjuð kaup hjá Aston Villa. Phil er fyrirmyndar atvinnumaður og áhrif hans eru afar augljós frá því hann kom til liðsins í janúar."

„Hann ber sig afar vel bæði innan sem utan vallar og er mikilvæg fyrirmynd fyrir yngri leikmennina sem geta notið góðs af reynslu hans,"
sagði Gerrard.


Athugasemdir
banner
banner
banner