Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fim 12. maí 2022 07:00
Elvar Geir Magnússon
Garnacho geggjaður þegar Man Utd vann unglingabikarinn
Garnacho kominn úr að ofan.
Garnacho kominn úr að ofan.
Mynd: Getty Images
Alejandro Garnacho var í aðalhlutverki þegar Manchester United vann FA unglingabikarinn í fyrsta sinn síðan 2011. Unglingalið United vann jafnaldra sína í Nottingham Forest 3-1 í úrslitaleik fyrir framan metfjölda áhorfenda.

67.492 áhorfendur voru á Old Trafford og sáu fyrirliðann Rhys Bennett koma United yfir. En Forest jafnaði með marki Joshua Powell sem Radek Vitek, markvörður United, vill ekki sjá aftur.

Þá var komið að Garnacho. Hann kom United yfir úr vítaspyrnu sem var ranglega dæmd og fagnaði með því að líkja eftir einkennisfagni Cristiano Ronaldo.

Garnacho er 17 ára Argentínumaður sem lék nýlega sinn fyrsta aðalliðsleik fyrir United. Hann fór á kostum í leiknum í gær og innsiglaði sigurinn með öðru marki sínu og þriðja marki United, 3-1 urðu lokatölur.

'Class of 22' stóð á borða í stúkunni en meðal áhorfenda á leiknum voru Sir Alex Ferguson, Bryan Robson, Michael Carrick, David De Gea, Harry Maguire og Bruno Fernandes.


Athugasemdir
banner
banner
banner