Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 12. maí 2022 11:32
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
ÍBV fær ungan sóknarmann frá Brentford B (Staðfest)
Mynd: Brentford
Sóknarmaðurinn Hans Mpongo er genginn í raðir ÍBV. Hans er fæddur í Hollandi og gekk í raðir Brentford um áramótin. Hann lék með varaliði Brentford eftir áramót.

Áður var hann hjá Needham Market sem spilar í utandeildinni.


Hans er fæddur árið 2003 og var í samningi hans við Brentford möguleiki um að framlengja dvölina um eitt ár. Sá möguleiki var ekki nýttur og er hann núna kominn með leikheimild á Íslandi.

Elvis Bwomono er einnig kominn með leikheimild með ÍBV en hann hefur æft með liðinu síðustu vikurnar.

ÍBV er með tvö stig eftir fimm leiki í Bestu deildinni. Mpongo gæti spilað með liðinu í sjöttu umferð þegar liðið mætir FH á sunnudag.


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner