Fotbolti.net
12.06.14 - 15:03
Magnús Már Einarsson

Cesc Fabregas til Chelsea (Staðfest)

Cesc Fabregas.

Cesc Fabregas.

Canon

Mynd: Heimasíða Chelsea

Chelsea hefur keypt miðjumanninn Cesc Fabregas frá Barcelona en hann hefur skrifað undir fimm ára samning við félagið. Talið er að kaupverðið sé í kringum 27 milljónir punda.
,,Ég tel að ég eigi óunnið verk í ensku úrvalsdeildinni og nú er rétti tíminn til að fara aftur þangað,\" sagði Fabregas í dag.

Fabregas lék með Arsenal frá 2003 til 2011 og þeir rauðklæddu áttu forkaupsrétt á leikmaninum.

Aresnal ákvað hins vegar að nýta sér ekki réttinn til að fá Fabregas aftur í sínar raðir og Chelsea stökk þá til.

Fabregas er 27 ára gamall en hann mun leika í treyju númer fjögur hjá Chelsea.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.