Fotbolti.net
12.06.20 - 13:21
Fótbolti.net

Arnór Ingi í Leikni (Staðfest)

Arnór Ingi í Leikni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sóknarleikmaðurinn Arnór Ingi Kristinsson er kominn í Leikni. Hann fékk í vikunni félagaskipti úr Fylki en er uppalinn í Stjörnunni.

Hann er 18 ára gamall og var hjá Willem II í Hollandi.

Arnór er í þessum skrifuðu orðum á æfingu með meistaraflokki á Domusnova-vellinum en við bjóðum hann velkominn í Breiðholtið!
Arnór á 13 unglingalandsleiki en þess má geta að hann er bróðir Kristófers Inga Kristinssonar sem er hjá Grenoble í frönsku B-deildinni.

Leiknir hefur leik í Lengjudeildinni eftir viku þegasr liðið mætir Þrótti en í kvöld á það bikarleik á heimavelli gegn Kára frá Akranesi.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.