Fotbolti.net
12.06.20 - 19:00
Ívan Guðjón Baldursson

Chirivella fer til Nantes (Staðfest)

Chirivella fer til Nantes (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool er búið að staðfesta að miðjumaðurinn Pedro Chirivella muni ganga til liðs við Nantes í frönsku deildinni um mánaðarmótin.
Chirivella fer á frjálsri sölu þar sem samningur hans við Liverpool rennur út 30. júní. Hann mun ekki klára tímabilið á Anfield enda ekki í plönum Jürgen Klopp.

Chirivella er 23 ára gamall og var lykilmaður í U17 liði Spánverja en tókst ekki að taka næsta skref.

Nantes endaði í 13. sæti frönsku deildarinnar, með 37 stig úr 28 leikjum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.