12.06.20 - 14:15
Magnús Már Einarsson
Ingvar Ásbjörn í ÍH (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍH í 4. deildinni hefur fengið Ingvar Ásbjörn Ingvarsson til liðs við sig frá Þrótti Vogum.
Ingvar Ásbjörn er örvfættur kantmaður og bakvörður en hann spilaði með Þrótti í 2. deildinni í fyrra þar sem hann skoraði fimm mörk í nítján leikjum.
Þar áður spilaði hann með Leikni R. og Fjarðabyggð í 1. deild þar sem hann skoraði sjö mörk í 67 leikjum.
ÍH mætir GG í 2. umferð Mjólkurbikarsins í kvöld en liðinu er spáð 1. sæti í sínum riðli í 4. deildinni í sumar.

ÍH hefur gengið frá samningi við Ingvar Ásbjörn. Ingvar er alinn upp í Kaplakrika og á hann að baki 67 leiki og 7 mörk fyrir Leikni Reykjavík og Fjarðarbyggð í 1. deild. Ingvar kemur frá Þrótti í vogum þar sem hann lék 19 leiki og skoraði 5 mörk. pic.twitter.com/2AGrRHaUuW
— ÍH Knattspyrna (@IHKnattspyrna) June 11, 2020