Fotbolti.net
12.06.20 - 12:00
Elvar Geir Magnússon

Kristján Gauti í FH (Staðfest) - Tekur fram skóna eftir langt hlé

Kristján Gauti Emilsson.

Kristján Gauti Emilsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Fótbolti.net sagði frá því í gærkvöldi að sóknarmaðurinn Kristján Gauti Emilsson væri að semja við FH.

Hafnfirðingar hafa nú staðfest að leikmaðurinn hafi tekið skóna úr hillunni eftir langt hlé og muni spila með FH út tímabilið 2020.

Kristján Gauti er 27 ára en hann hætti óvænt í fótbolta 23 ára þegar hann var hjá NEC Nijmegen í Hollandi. Persónulegar ástæður voru sagðar liggja að baki en hann hefur aldrei tjáð sig opinberlega um málið.

Kristján Gauti var feykilega mikið efni á sínum tíma og fór ungur í Liverpool þar sem hann lék fyrir yngri lið félagsins.

Hann lék síðast fyrir FH 2014 þegar hann skoraði fimm mörk í níu leikjum í efstu deild.

Það verður gríðarlega áhugavert að sjá hvernig hann mun finna sig í sumar en FH hefur leik í Pepsi Max-deildinni á sunnudag þegar liðið mætir HK í Kópavoginum.

„Kristján Gauti er öflugur sóknarmaður sem við FH-ingar erum gífurlega ánægðir að fá aftur heim í Kaplakrika þar sem hann mun bera treyju númer 13," segir í tilkynningu FH.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.