12.06.20 - 08:55
Magnús Már Einarsson
Leonard í Kórdrengi (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kórdrengir hafa fengið kantmanninn Leonard Sigurðsson í sínar raðir frá Fylki.
Leonard er uppalinn hjá Keflavík en hann gekk í raðir Fylkis fyrir síðata tímabili.
Hinn 24 ára gamli Leonard spilaði fjóra leiki með Fylki í Pepsi Max-deildinni í fyrra.

Árið 2018 spilaði hann sautján leiki með Keflvíkingum í Pepsi-deildinni.
Kórdrengir mæta Hamri í 2. umferð Mjólkurbikarsins í kvöld en þeir leika síðan við Víði Garði í fyrsta leik í 2. deildinni laugardaginn 20. júní.