Fotbolti.net
12.06.20 - 10:20
Magnús Már Einarsson

Madison Gonzalez í FH (Staðfest)

Úr leik hjá FH.

Úr leik hjá FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
FH hefur fengið framherjann Madison Gonzalez til liðs við sig fyrir átökin í Pepsi Max-deild kvenna í sumar.
Madison er 23 ára framherji sem kemur úr háskólaboltanum í Bandaríkjunum. Síðasta lék hún með Santa Clara háskólanum í Kaliforníu.

„Madison kemur til með styrkja liðið í þeim átökum sem framundan eru í Pepsí Max deildinni og við bjóðum hana velkomna í FH," segir í tilkynningu frá FH.

Fótbolti.net spáir nýliðum FH 8. sæti í deildinni í sumar en liðið mætir Breiðabliki í fyrstu umferð á morgun.

Madison er mætt í Draumaliðsdeild 50skills
Madison er mætt í Draumaliðsdeild 50skills. Kemst hún í þitt lið?
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.