12.06.20 - 16:57
Elvar Geir Magnússon
Víkingur Ólafsvík fær Ólaf Bjarna lánaðan (Staðfest)

Ólafur Bjarni Hákonarson.

Mynd: Víkingur Ólafsvík

Ólafur Bjarni Hákonarson.

Mynd: Víkingur Ólafsvík
Víkingur Ólafsvík hefur fengið Ólaf Bjarna Hákonarson lánaðan frá Stjörnunni út þetta tímabil.
Ólafur, sem er tvítugur að aldri, er örvfættur og getur bæði spilað sem bakvörður, á miðjunni og á kantinum.
Hann á að baki 4 U-18 landsleiki fyrir Íslands hönd.
„Hann hefur leikið síðustu þrjá æfingaleiki Víkings, skorað eitt mark og staðið sig vel. Við bjóðum Ólaf velkominn til Ólafsvíkur!" segir í tilkynningu frá Ólafsvíkurfélaginu.
Ólsurum er spáð 7. sæti í Lengjudeildinni í sumar. Liðið fær Vestra í heimsókn í 1. umferð þann 20. júní.
Á morgun leikur liðið gegn Þrótti Vogum í Mjólkurbikarnum. Leikurinn verður klukkan 16 á Vogaídýfuvellinum margrómaða.