Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 12. júní 2021 15:06
Victor Pálsson
Byrjunarlið Danmerkur og Finnlands: Older Wind byrjar
Mynd: Getty Images
Annar leikur dagsins á EM hefst klukkan 16:00 í dag er Danmörk og Finnland eigast við í þriðja leik mótsins til þessa.

Þessi lið leika í riðli með bæði Belgum og Rússum en þau lið mætast einmitt í kvöld klukkan 19:00.

Byrjunarliðin úr leiknum í Köben eru dottin inn þar sem heimaliðið frá Danmörku er talið sigurstranglegra.

Simon Kjær og Andreas Christensen mynda vörn Dana að þessu sinni og situr Jan Vestergaard á bekknum.

Fremsti maður Dana er leikmaður að nafni Jonas Older Wind sem spilar með FCK í heimalandinu. Þar hefur Older Wind verið drjúgur fyrir framan markið.

Hér má sjá byrjunarliðin í dag.

Danmörk: Schmeichel; Wass, Kjaer, Christensen, Maehle; Delaney, Hojbjerg; Poulsen, Eriksen, Braithwaite; Wind

Finnland: Uronen, Arajuuri, O'Shaughnessy, Toivio, Raitala; Kamara, Sparv; Lod; Pukki, Pohjanpalo
Athugasemdir
banner