Takefusa Kubo, stundum kallaður 'Japanski Messi', er gríðarlega efnilegur leikmaður.
Kubo er á mála hjá Real Madrid, en hann var áður fyrr hjá Barcelona. Real Madrid vann baráttuna við Barcelona og Real Madrid um hann sumarið 2019.
Kubo er 20 ára gamall og var á láni hjá Villarreal og Getafe í spænsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.
Hann er sóknarsinnaður leikmaður sem spilar einnig fyrir japanska landsliðið.
Hann spilaði með U24 liði Japans gegn Jamaíka í gær. Hann átti góðan leik þegar Japan vann 4-0. Hann skoraði fallegt mark, í raun einstakt mark. Skot hans fór í gegnum klofið á fjórum varnarmönnum Jamaíka.
Hægt er að sjá markið hér að neðan. Einstakt mark.
Nothing interesting to see here just Kubo doing 4 nutmegs at once to score a wonderful goal..! #Kubo #HalaMadrid pic.twitter.com/ShVSZ3SqEN
— Utsav (@RudeMadridista) June 12, 2021
Athugasemdir