Fotbolti.net
12.06.25 - 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Riftunarverðið í raun bara klink fyrir úrvalsdeildarfélög

Japhet Tanganga.

Japhet Tanganga.

Canon

Mynd: Millwall

Fjögur félög í ensku úrvalsdeildinni hafa áhuga á Japhet Tanganga, miðverði Millwall.

Leikmaðurinn er eftirsóttur og það sem meira er, þá er hann með riftunarverð í samningi sínum upp á 1,2 milljónir punda. Það er í raun bara klink fyrir félög í ensku úrvalsdeildinni.
Mourinho: Salah og Mane vita núna hver Tanganga er
TENGT EFNI

Mourinho: Salah og Mane vita núna hver Tanganga er

Talið er að allir nýliðarnir - Burnley, Leeds og Sunderland, hafi áhuga á honum.

Tanganga er 26 ára gamall miðvörður sem getur einnig spilað sem hægri bakvörður. Hann hefur leikið með Millwall frá því í fyrra og hefur hann vakið athygli fyrir góða frammistöðu í Championship-deildinni.

Hann er uppalinn í Tottenham og spilaði 50 leiki fyrir aðallið félagsins áður en hann fór til Millwall. Jose Mourinho var mjög hrifinn af honum þegar hann var stjóri Spurs.

Tanganga hefur jafnframt spilað fyrir öll yngri landslið Englands.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.