
Á morgun verður 23 manna hópur Íslands fyrir EM tilkynntur. Það verður svo sannarlega gaman að sjá hvaða leikmenn verða fulltrúar Íslands í Sviss.
Það eru nokkrir leikmenn með alveg öruggt sæti í hópnum, en við skulum aðeins fara yfir þetta.
Það eru nokkrir leikmenn með alveg öruggt sæti í hópnum, en við skulum aðeins fara yfir þetta.
Markverðir
Cecilía Rán Rúnarsdóttir - Inter
Fanney Inga Birkisdóttir - Häcken
Telma Ívarsdóttir - Breiðablik
Þessar þrjár eru öruggar í hópinn. Cecilía verður aðalmarkvörður á mótinu og Fanney verður númer tvö. Telma verður svo þeim til halds og trausts. Þær hafa verið í undanförnum hópum og þar sem Aldís Guðlaugsdóttir er meidd, þá er í raun enginn markvörður að veita þeim mikla samkeppni.
Varnarmenn
Glódís Perla Viggósdóttir - Bayern München
Ingibjörg Sigurðardóttir - Bröndby
Guðrún Arnardóttir - Rosengård
Sædís Rún Heiðarsdóttir - Vålerenga
Guðný Árnadóttir - Kristianstad
Undirritaður myndi segja að þessar fimm væru alveg öruggar af varnarmönnunum. Glódís er fyrirliði Bayern í Þýskalandi og er okkar fyrirliði. Hún var að glíma við meiðsli en spilaði síðustu tvo leiki. Ingibjörg og Guðrún eru að berjast um að vera í miðverðinum með Glódísi, en Guðrún hefur mikið verið að spila bakvörðinn. Þær þrjár munu eflaust byrja í varnarlínu Íslands í fyrsta leik á EM og svo er bara spurning hver er með þeim. Sædís og Guðný Árnadóttir eru líklegir kostir þar, en Guðný spilar hægri bakvörð og Sædís leikur í vinstri bakverði.
Þá eru nokkur pláss eftir fyrir varnarmenn og eru nokkrir leikmenn að bítast um þau. Það eru þessir leikmenn:
Natasha Anasi - Valur
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir - Breiðablik
Arna Eiríksdóttir - FH
Elísa Viðarsdóttir - Valur
Kristín Dís Árnadóttir - Breiðablik
Miðjumenn
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir - Bayer Leverkusen
Alexandra Jóhannsdóttir - Kristianstad
Dagný Brynjarsdóttir - West Ham
Hildur Antonsdóttir - Madrid CFF
Berglind Rós Ágústsdóttir - Valur
Þessir leikmenn hafa verið mest fast sæti í hópnum og ég geri fastlega ráð fyrir því að þær fari allar með á EM í Sviss. Karólína er meira framliggjandi á miðjunni á meðan hinar eru meira í því að halda þar fyrir aftan.
Það gæti verið að Steini taki einn, jafnvel tvo, miðjumenn til viðbótar á mótið. Það gætu þá verið:
Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir - Tampa Bay
Selma Sól Magnúsdóttir - Rosenborg
Lára Kristín Pedersen - Club Brugge
Heiða Ragney Viðarsdóttir - Breiðablik
Selma Sól er vanalega í hópnum en hún hefur verið að glíma við meiðsli og ólíklegt að hún verði með vegna þeirra.
Kantmenn og framliggjandi leikmenn
Katla Tryggvadóttir - Kristianstad
Sandra María Jessen - Þór/KA
Hlín Eiríksdóttir - Leicester
Sveindís Jane Jónsdóttir - Wolfsburg
Þessar hafa verið fastamenn í hópnum upp á síðastkið og fara alltaf með á mótið. Þetta eru hæfileikaríkir leikmenn sem eru mikilvægar í sóknarleik Íslands, og þá sérstaklega Sveindís Jane sem verður í algjöru lykilhlutverki í sumar.
Amanda Andradóttir og Emilia Kiær Ásgeirsdóttir væru inn á þessum lista en þær þurftu að draga sig úr síðasta hóp vegna meiðsla. Vonandi eru þær búnar að jafna sig alveg og þá eru þær öruggar með á mótið. Annars eru næstu leikmenn inn:
Amanda Andradóttir - Twente
Emilia Kiær Ásgeirsdóttir - RB Leipzig
Hafrún Rakel Halldórsdóttir - Bröndby
Agla María Albertsdóttir - Breiðablik
Fanndís Friðriksdóttir - Valur
Ásdís Karen Halldórsdóttir - Madrid CFF
Diljá Ýr Zomers - Leuven
Vigdís Lilja Kristjánsdóttir - Anderlecht
Berglind Björg Þorvaldsdóttir - Breiðablik
Það eru 17 leikmenn með öruggt sæti á mótið samkvæmt þessum pælingum og sex sæti í boði. Það verður gaman að sjá hvað landsliðsþjálfarinn gerir.
Leikir Íslands á EM:
2. júlí, Ísland - Finnland
6. júlí, Ísland - Sviss
10. júlí, Ísland - Noregur
Athugasemdir