Fotbolti.net
12.07.13 - 09:00
Magnús Már Einarsson

Óttar Magnús í Ajax (Staðfest)

Óttar og Marc Overmars yfirmaður knattspyrnumála hjá Ajax.

Óttar og Marc Overmars yfirmaður knattspyrnumála hjá Ajax.

Canon

Mynd: Kristján Bernburg

Óttar Magnús Karlsson, framherji úr Víkingi R., skrifaði í gær undir þriggja ára samning við hollenska stórliðið Ajax.

Óttar Magnús mun leika með U17 ára liði Ajax til að byrja með.

Jan de Konig njósnari hjá Ajax tók fyrst eftir Óttari í knattspyrnuskóla Kristjáns Bernburg.

Í kjölfarið fór Óttar tvívegis til æfinga hjá Ajax og í kjölfarið var honum boðinn samningur.
Óttar mun hefja æfingar með Ajax þann 29. júlí næstkomandi en hann hefur verið viðloðandi meistaraflokk Víkings undanfarna mánuði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.