12.07.14 - 06:00
Arnar Daði Arnarsson
Fjölnir kallar Ágúst Örn aftur úr láni (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjölnismenn hafa kallað framherjann Ágúst Örn Arnarson til baka úr láni frá Selfossi. Hann er því með leikheimild með Fjölni gegn ÍBV á sunnudaginn.
Ágúst Örn hefur komið við sögu í sjö leikjum með Selfossi í sumar. Hann lék tólf leiki með Fjölni í fyrrasumar og skoraði þar tvö mörk.
Ágúst Örn hefur komið við sögu í sjö leikjum með Selfossi í sumar. Hann lék tólf leiki með Fjölni í fyrrasumar og skoraði þar tvö mörk.
Ágúst er annar lánsmaðurinn sem er kallaður frá Selfyssingum á stuttum tíma því Framarar fengu Hafþór Mar aftur til sín eftir að hafa verið á láni á Selfossi í sumar.
Ágúst Örn fer til Bandaríkjanna í skóla í ágúst og nær því ekki að klára tímabilið með Fjölni.
Ágúst Örn fer til Bandaríkjanna í skóla í ágúst og nær því ekki að klára tímabilið með Fjölni.
